Tengjast vefþjónustu
Til að tengjast þjónustunni velur þú Valmynd > Internet > Heim; eða í biðstöðu ýtir
þú á og heldur 0.
Eftir að þú hefur tengst þjónustu geturðu hafið skoðun á síðum hennar. Virkni takkanna
á símanum er mismunandi eftir þjónustuveitum. Fylgdu textaleiðbeiningunum á
símaskjánum. Nánari upplýsingar fást hjá þjónustuveitu.
16. SIM-þjónusta
SIM-kortið kann að bjóða upp á meiri þjónustu. Einungis er hægt að opna þessa valmynd
ef SIM-kortið styður hana. Heiti og efni valmyndarinnar fer eftir þjónustunni sem er í
boði.
17. Græn ráð
Hér eru ábendingar sem hjálpa þér að stuðla að verndun umhverfisins.
Orkusparnaður
Þegar rafhlaðan er fullhlaðin og hleðslutækið tekið úr sambandi við tækið skaltu muna
að taka hleðslu tækið úr sambandi við innstunguna.
Þú þarft ekki að hlaða rafhlöðuna eins oft ef þú gerir eftirfarandi:
● Lokaðu og gerðu óvirk forrit, þjónustu og tengingar þegar þær eru ekki í notkun.
● Minnkaðu birtustig skjásins.
● Stilltu tækið þannig að það fari í orkusparnaðarstillingu eftir lágmarkstíma af
aðgerðaleysi, ef tækið bíður upp á það.
● Slökktu á ónauðsynlegum hljóðum, eins og takkatónum. Stilltu hljóðstyrk tækisins á
meðalstyrk.