microSD-korti komið fyrir
Aðeins skal nota samhæft microSD-minniskort sem Nokia samþykkir til notkunar með
þessu tæki. Nokia styðst við viðurkennda staðla fyrir minniskort. Þó getur verið að sum
kort sé ekki hægt að nota að fullu með þessu tæki. Ósamhæf kort geta skaðað kortið og
tækið og skemmt gögn sem vistuð eru á kortinu.
Síminn styður allt að 2 GB microSD-kort.
1. Opnaðu lok minniskortsraufarinnar.
2. Settu kortið í raufina þannig að snertiflötur þess snúi upp og ýttu á það þar til það
smellur á sinn stað.
3. Lokaðu minniskortsraufinni.
© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.
7