Loftnet
Í tækinu kunna að vera innri og ytri loftnet. Líkt og gildir um öll önnur tæki sem
senda eða taka við útvarpsbylgjum ætti að forðast að snerta loftnetið að óþörfu
við móttöku eða sendingu útvarpsbylgna. Snerting við slíkt loftnet hefur áhrif á
sendigæði og getur valdið því að tækið noti meiri orku en annars er nauðsynlegt
og getur minnkað líftíma rafhlöðu þess.
Myndin sýnir loftnetssvæðið merkt með gráu.