Nokia 2700 classic - Forrit sem keyra í bakgrunninum

background image

Forrit sem keyra í bakgrunninum

Keyrsla forrita í bakgrunni krefst aukinnar rafhlöðuorku og minnkar líftíma

rafhlöðunnar.

Tækið tekið í notkun

© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.

10

background image

2. Almennar upplýsingar

Um tækið

Þráðlausa tækið sem er lýst í þessari handbók er samþykkt til notkunar í (E)GSM 850,

900, 1800 og 1900 MHz símkerfi. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar um símkerfi.
Við notkun þessa tækis skal hlíta öllum lögum og virða staðbundnar venjur, einkalíf og

lögmæt réttindi annarra, þ.m.t. höfundarrétt.
Varnir vegna höfundarréttar geta hindrað afritun, breytingu eða flutning sumra mynda,

tónlistar og annars efnis.
Tækið getur innihaldið bókamerki og tengla fyrir vefsíður þriðju aðila. Einnig er hægt

að skoða vefsíður þriðju aðila í tækinu. Vefsíður þriðju aðila tengjast ekki Nokia og Nokia

hvorki hvetur til né tekur ábyrgð á þeim. Ef þú vilt heimsækja slíkar síður skaltu beita

öryggisráðstöfunum.

Viðvörun: Við notkun allra aðgerða í þessu tæki, annarra en vekjara, þarf að

vera kveikt á tækinu. Ekki skal kveikja á tækinu þegar notkun þráðlausra tækja getur

valdið truflun eða hættu.
Muna skal að taka öryggisafrit eða halda skrá yfir allar mikilvægar upplýsingar sem

geymdar eru í tækinu.
Þegar tækið er tengt öðru tæki skal lesa notendahandbók þess vandlega, einkum

upplýsingar um öryggi. Ekki má tengja saman ósamhæf tæki.
Myndir í þessum bæklingi kunna að líta öðruvísi út en á skjá tækisins.

Sérþjónusta

Til að hægt sé að nota tækið verða notendur að vera áskrifendur þjónustu fyrir þráðlausa

síma. Margir af valkostum símans flokkast undir sérþjónustu. Ekki er hægt að nota þessa

valkosti í öllum símkerfum. Í öðrum símkerfum kann jafnframt að vera farið fram á

sérstaka skráningu fyrir þessari þjónustu. Notkun netþjónustu felur í sér sendingu

gagna. Fáðu upplýsingar hjá þjónustuveitu þinni um gjöld á heimaneti þínu og þegar

reiki er notað á öðrum netum. Leiðbeiningar ásamt upplýsingum um gjald fyrir

þjónustuna fást hjá þjónustuveitu. Sum símkerfi kunna að hafa takmarkanir sem hafa

áhrif á hvernig hægt er að nota sérþjónustu. Sum símkerfi styðja t.d. ekki alla séríslenska

bókstafi og þjónustu.
Þjónustuveitan kann að hafa beðið um að tilteknar aðgerðir væru hafðar óvirkar eða

ekki gerðar virkar í tækinu. Ef svo er birtast þær ekki í valmynd tækisins. Tækið kann

einnig að hafa verið sérstillt, t.d. kann heitum, röð og táknum valmynda að hafa verið

breytt. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.
Þetta tæki styður WAP 2.0 samskiptareglur (HTTP og SSL) sem keyra á TCP/IP

samskiptareglum. Sumar aðgerðir þessa tækis, svo sem margmiðlunarskilaboð (MMS),

vafri og tölvupóstforrit, krefjast símkerfisstuðnings við þessa tækni.