alveg áður en rafhlaðan er sett í það aftur.
● Nota skal mjúkan, hreinan, þurran klút til að hreinsa linsur, líkt og myndavélar-,
fjarlægðarnema- og ljósnemalinsur.
● Ekki skal nota tækið á rykugum og óhreinum stöðum né geyma það þar. Hreyfanlegir
hlutir og rafrænir hlutar þess geta skemmst.
● Ekki skal geyma tækið á heitum stað. Hátt hitastig getur dregið úr endingu
rafeindatækja, skemmt rafhlöður og undið eða brætt sum plastefni.
● Ekki skal geyma tækið á köldum stað. Þegar tækið hitnar upp að eðlilegu hitastigi
getur raki myndast innan í því og hann getur skemmt rafrásaspjöld.
● Ekki skal reyna að opna símann öðruvísi en tilgreint er í þessari handbók.
● Tækinu skal ekki henda, ekki skal banka í það eða hrista það. Óvarleg meðferð getur
skemmt innri rafrásaspjöld og fíngerðan búnað.
● Ekki skal nota sterk efni, leysiefni til hreingerninga eða sterk hreinsiefni til þess að
þrífa tækið.
● Ekki skal mála tækið. Málningin getur fest hreyfanlega hluti tækisins og komið í veg
fyrir að þeir vinni rétt.