Nokia 2700 classic - Músíkspilari

background image

Músíkspilari

Síminn þinn inniheldur músíkspilara til að hlusta á lög eða aðrar MP3 eða AAC hljóðskrár.

Viðvörun: Hlusta skal á tónlist með hæfilegum hljóðstyrk. Stöðug áraun af háum

hljóðstyrk getur skaðað heyrn. Ekki skal halda tækinu nálægt eyranu þegar hátalarinn

er notaður því hljóðstyrkur getur verið mjög mikill.
Veldu Valmynd > Miðlar > Tónlistarspilari.
Til að hefja spilun eða gera hlé á henni ýtirðu á valtakkann í miðjunni.
Til að fara á byrjun lags sem er í spilun flettir þú til vinstri.
Til að fara í fyrra lag flettir þú tvisvar til vinstri.
Til að fara í næsta lag flettir þú til hægri.
Til að spóla til baka ýtirðu á vinstri flettitakkann og heldur honum niðri.
Til að spóla áfram ýtirðu á hægri flettitakkann og heldur honum niðri.
Til að stilla hljóðstyrkinn flettirðu upp eða niður.
Kveikt og slökkt er á músíkspilaranum með því að ýta á #.
Til að leyfa tónlist að spila í bakgrunninum ýtir þú á hætta-takkann. Til að loka

tónlistarspilaranum ýtir þú á og heldur inni hætta-takkanum.

13. Forrit

Í hugbúnaði símans kunna að vera nokkrir leikir og Java-forrit sem eru sérstaklega

hönnuð fyrir Nokia-símann.
Veldu Valmynd > Forrit.
Veldu Leikir eða Safn til að opna leik eða forrit. Flettu að leik eða forriti og veldu

Opna.
Til að skoða hve mikið minni er tiltækt fyrir uppsetningu nýrra leikja og forrita velurðu

Valkostir > Staða minnis.